Fleygar setningar...Halldóra Kristjónsdóttir

Sko hann Arnold, he makes my day!!!! 

Var að lesa séð og heyrt og þar er síða með svo kölluðu stjörnuspeki, hans speki var snilld….
 

 
“Mér finnst að samkynhneigt hjónaband sé eitthvað sem ætti að vera á milli manns og konu”
 Já Arnold minn það meikar sens…..  Eða hvað finnst ykkur? 

Einn niðrí vinnu hjá mér vildi meina að Arnold væri bara svo mikill húmoristi að hann væri nú bara að djóka með þetta en ég veit ekki alveg, hann er vöðvabúnt eins og Arnold kallinn og ég held að þessi vöðvabúnt standi soldið saman gegn okkur hinum.Glottandi
 

Átti líka soldið erfitt með að komast yfir ummæli hennar sætu Jessicu, ha er til fólk frá Texas með anorexíu???? Dddöööö ég er bara blondí!!!
 

Síðan er Begga sæta sem er að vinna með mér í S&H, mamma hennar lenti í 3. sæti í smásögukeppni hjá Nýju Lífi, geggjuð flott mynd af henni með foreldrum sínum.Hlæjandi
 

Síðan er það bara alltaf sama sagan vinna vinna vinna….. Missti af heljarinnar partý seinustu helgi á hólmavík, var að vinna by the way….  Stefni á Hamingjudaga í staðinn.  Styttist í það sem betur fer….
 

En verð að kveðja í bili, við verðum bara í bandi.
 

Krúnk krúnk.

Gargandi Snilld....Halldóra Kristjónsdóttir

Ég get svo svarið fyrir það hvað mar er virkur fyrir þetta blogg.....

Eins og vanalega þá er mar líka búin að hafa mikið að gera undanfarið, búin að skreppa á Hólmavík tvisvar og búin að vera fá gesti og svoleiðis....


En rosalega er alltaf gott að skreppa til mömmu og pabba, mar vill helst ekki fara.  Þetta er búið að vera svaka fínt þar, fór á hestbak, fór í fermingu á Blönduósi, festist í Hvalbaksvík í nokkra klukkutíma, horfði á hvali leika sér í firðinum, kíkti á kosningavöku á Riis og djammaði þar langt fram eftir morgun eins og vaninn er Glottandi

Síðan þegar þau voru í bænum hjá mér þá var haft það kósý og fínt, "litla" frænka kom og var hjá mér um þá helgi, letilíf hjá okkur allan tímann Ullandi

Búin að taka ákvörðun varðandi menntun, ætla að skella mér í viðskiptafræði á Bifröst, fá mér geggjaða menntun þar og fá gerræðislega góða vinnu sem er vellaunuð..... Money money money Gráðugur

Það verður samt ekki alveg strax, eftir ár eða svo....
Ætla að reyna að vinna aðeins áður en ég skelli mér aftur í skólann og líka aðeins að  fá að upplifa það að vera íbúðareigandi Hlæjandi

En þangað til seinna þið fallega fólk, þá heyrumst við seinna....

Hrafninn kveður í bili Tala af sér


 

Gleđilega Páska :)Halldóra Kristjónsdóttir

Hæ hæ allir og gleðilega páska, vonandi fáiði fullt af páskaeggjum og flotta málshætti.... Hlæjandi

Kveðja í bili...

Til hamingju Anna og Elli :)Halldóra Kristjónsdóttir

Ooohh alveg yndislegur dagur í dag!!!

Vaknaði hress og kát, tók mig til fyrir vinnuna og þegar ég var rétt svo komin inn á vinnustaðinn þá hringir Anna vinkona í mig til þess að láta mig vita að Helga Dóra sé komin í heimin!!!!!

Ég var svo ánægð því að það er sko virkilega búið að bíða eftir þessum litla engli með þvílíkum eftirvæntingum!!!Hlæjandi

Litla sæta snúllan sem var svo lítil að sögn foreldrana er 17 merkur og 53 cm, fullkomin að öllu leyti með 10 fingur og tær.

Elli var svo sætur í sér að koma síðan seinna um daginn niðrí vinnu og sýna mér myndir af litlu skottu, ætla einmitt að fara á morgun og heilsa upp á þau öll.

Anna, Elli, Axel og Sólon innilega til hamingju með litlu prinsessuna

Brosandi

Hugarafliđ....Halldóra Kristjónsdóttir

Jæja tími á smá blogg hérna.....

Seinasta helgi var frábær, fékk " litlu " frænku mína í heimsókn og gisti hún hjá mér alla helgina, það var voða kósý hjá okkur, púsluðum, átum nammi, horfðum á myndir, átum nammi, fórum á flakk, átum nammi og líka vorum í nammikasti Saklaus

Síðan buðu Hanna og Sigurþór mér í mat á sunnudaginn og var það bara delicious!!! kjúklingur, nachos, ostasósa og salsasósa og guatomalo sósa allt í eldfast mót og ost yfir, inní ofn í tíu mín, algjört sælgæti....Ullandi 

Tilviljun eða hvað, hef verið að lenda í því núna undanfarið að vera að hugsa til fólks sem ég hef ekki hitt lengi, mörg ár kannski, bara verið að hugsa hvað sé að frétta af þeim, hvað þau skildu vera að gera af sér og þess háttar.  Nema að þetta fólk hefur svo verið að birtast niðrí vinnu eða ég hitt þau á röltinu og svoleiðis, tilviljun eða hugaraflið???Óákveðinn
Finnst þetta svona smá fríkí, ætli mar getur dregið að sér manneskjur með því að hugsa soldið um það???

Ætla að prófa það og læt ykkur síðan vita Glottandi

Hvað skyldi Matthew Bellamy vera að gera af sér núna, eða Jared Padalecki?  Ullandi Tíhíhí.....

Heyrumst.....

Komin heim.....Halldóra Kristjónsdóttir

Ohh hvað það er yndislegt að vera komin með sína eigin íbúð!!!!

Þetta er algjör draumur....

Það er búið að vera svo mikið að gera hjá mér undanfarnar vikur að ég hef varla haft tíma til þess að anda.....

Ég er búin að standa í flutningum og öllu því sem því fylgir, síðan er mar búin að vera að vinna eins og geðsjúklingur því að einhvernveginn verður mar að hafa efni á þessari yndislegu íbúð og síðan má maður ekki vanrækja vinina.... Ehemm ég veit að sum ykkar eruð búin að sitja soldið á hakanum undanfarið en vonandi eru nú hlutirnir að róast hjá mér svo að ég mun fara að kíkja til ykkar Hlæjandi

Vitiði það að ég er svo heppin manneskja að það hálfa er nóg....
Um daginn í vinnunni þá lenti ég í mjög neyðarlegu atviki, það var mjög rólegur dagur og  Magga sem er að vinna með mér ákvað að setja einhverja diska í spilarann svo að við hefðum einhverja músik þarna, note bene þá voru þetta diskar sem voru þarna og við vissum ekkert hvað væri á þeim, nema hvað að þetta voru ágætis lög sem komu þarna, Bowie, Bubbi, The Doors og fleiri. 
Nema hvað að þarna kom lag með Bubba sem er algjört rasistalag, þar sem hann var að syngja til nýbúa að Ísland væri fyrir íslendinga og að nýbúarnir ættu að fara heim.  við hlógum bara eitthvað að þessu og vorum ekki að kippa okkur upp við þetta þar sem ekkert var að gera í búðinni og bjuggumst ekki við því að þetta lag kæmi aftur, nema hvað að stuttu seinna fór Magga út að reykja og ég sat ein frammi að bíða eftir einhverju að gera.  Haldiði ekki að lagið hans Bubba kom aftur á fóninn og ekki nóg með það þá þurfti endilega maður að koma akkurat þá inn með Tælenskri konu sinni og barni þeirra....
Ég sver það að mér hefur aldrei á ævinni liðið eins illa, ég vona að þau hafi ekki heyrt lagið, allavega þá kvörtuðu þau ekkert á meðan Bubbi öskraði, " Fariði heim... Fariði heim... Ísland er fyrir Íslendinga!!! "  Skömmustulegur

Sá fyrirsögnina fyrir mér hjá DV " Esso Rasistar " Hissa

Allavega þá kveð ég ykkur í bili og heyrumst snúllurnar mínar Glottandi

Nýir hlutir á nýju ári....Halldóra Kristjónsdóttir

Vá, ég er svo spennt að ég er að deyja!!!!!

Haldiði ekki að mín hafi bara ekki skellt sér núna þann tíunda á nýja íbúð, keypti sér eina stóra og góða þriggja herbergja íbúð, gerist ekki betra, eiginlega jú þá gerist það betra því að ég fæ hana afhenta 1. febrúar!!! Lúxus bara Hlæjandi

Ég er gjörsamlega að deyja úr spenningi, er búin að vera að plana hvernig ég á að raða hlutunum og hvernig ég eigi að mála íbúðina.  Get ekki beðið eftir þessu.... Ullandi

Vildi bara deila þessari frétt með ykkur, býst ekki við að skrifa aftur fyrr en ég er flutt, annars allt gott að frétta, mikið að gera niðrí vinnu og er þar að leiðandi búin að vera að vinna eins og geðsjúklingur... Gráðugur Money money money....Gráðugur

Annars skila eg bara kærri kveðju til ykkar allra og heyrumst þegar mar verður kominn i nýju íbúðina Hlæjandi 

Nýtt ár á leiđinni.....Halldóra Kristjónsdóttir

Jæja er að fara norður á morgun og mun fagna nýju þar svo að til ykkar allra þá segji ég......


Gleðilegt nýtt ár og takk æðislega

fyrir það gamla Hlæjandi

Hafið það sem allra best og heyri fljótlega í ykkur snúllurnar mínar....



Ţađ sem er á döfinni.Halldóra Kristjónsdóttir

Loksins er hann faðir minn að fara að koma heim, eftir langa dvöl útí Afríku, ef að allt gengur eftir þá ætti hann að koma á morgun sem að ég vona að hann geri.Hlæjandi

Ég er búin að vera að skoða íbúðir alveg á fullu og ekkert gengur, by the way ef að þið  ætlið að tékka á íbúðum í gegnum visir.is sleppið því, er búin að lenda nokkrum sinnum í því að hafa séð draumaíbúðina þar, hringt í fasteignasöluna til þess að fá að skoða hana og þá fæ ég að heyra :"Nei því miður hún er löngu seld, er hún enn á netinu?"Öskrandi

Ég meina það, þetta er bara til þess að gera mann pirraðann.  Ég er alveg að gefast upp á þessu, mig langar svo að komast í mína eigin íbúð en það virðist ekki ætla að ganga upp.Gráta

En svo er það, þetta hlýtur að fara að gerast núna bráðum, ég trúi ekki öðru.  Síðan er það, það er ógeðslega stutt í jólin, mig hryllir við tilhugsunina hvað það er rosalega stutt í þau...  Ég á eftir að gera allt gjörsamlega.  Er alls ekki þessi jólatýpa, hef ekkert gaman að því að skreyta, býð ekki í ofvæni eftir því að heyra jólalögin og dauðleiðist að finna og kaupa jólagjafir handa fólki. Óákveðinn

Það eina sem er varið í jólin er að maður hittir sína nánustu á aðfangadagskveldi og fær að eiga yndislega kvöldstund með þeim, einnig er gaman að hitta ættingjana á jóladag, borða góðann mat með þeim og spila, það er það eina sem ég hef gaman af og hlakka til þannig séð.
Veit að ég er soldið spes... Saklaus

Mamma er alveg í molum útaf þessu, hún er svo mikið jólabarn, held að hún sé enn að velta því fyrir sér hvar hún brást mér í uppeldinu... Glottandi



Jæja, með jólakveðju að sinni...

Adios.....

Hvítur og nördalegur...Halldóra Kristjónsdóttir

Mér til mikillar gleði þá heyrði ég það fyrir einhverju síðan að hann Weird Al væri að fara að gefa út disk aftur, mér finnst hann bara frábær og hafa meiriháttar húmor.....

Var aðeins að vafrast og datt þá inn á þetta og hló mig máttlausa.....


Þetta er bara fyndið, allavega að mínu mati Ullandi


Ađalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Könnun

Ţekkiru mig?

Leit

Innskráningar kubbur